Búið er að opna kjörstaði

Kjörstaður á Húsavík opnaði í Borgarhólsskóla kl 10 í morgun. Þá hafði þegar myndast biðröð við kjör…
Kjörstaður á Húsavík opnaði í Borgarhólsskóla kl 10 í morgun. Þá hafði þegar myndast biðröð við kjörstað. Mynd/epe

Búið er að opna kjörstaði í kjördæminu og eru þeir opnir sem hér segir:

Kjörfundur á Akureyri:

Akureyrarbæ er skipt í tólf kjördeildir, tíu á Akureyri, eina í Hrísey og eina í Grímsey. 

Á Akureyri verður kjörstaður í Verkmenntaskólanum á Akureyri, í Hrísey verður kjörstaður í Hríseyjarskóla og í Grímsey verður kjörstaður í Félagsheimilinu Múla.

Kjörfundur hófst á Akureyri, í Hrísey og í Grímsey kl. 9:00 og lýkur eigi síðar en klukkan 22:00.

Kjörfundur í Eyjafjarðarsveit:

Kjörfundur er í Hrafnagilsskóla og hefst hann kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.
Á kjördegi hefur kjörstjórn aðsetur í Hrafnagilsskóla, sími 464-8100 eða 894-1372.
Þeir sem eiga erfitt með gang mega aka að inngangi skóla.

Kjörfundur í Dalvíkurbyggð:

Kjörstaður er í Dalvíkurskóla, gengið er inn að vestan.

Kjörfundur hófst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.

Kjörfundur í Norðurþingi er skipt niður í 5 kjördeildir:

  • Kjördeild I og II - Borgarhólsskóla Húsavík
    Fyrir íbúa Húsavíkur og Reykjahverfis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-22:00. Inngangur að austanverðu, gengt Framhaldsskólanum.
  • Kjördeild III - Skúlagarði
    Fyrir íbúa Kelduhverfis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00.
  • Kjördeild IV - Skólahúsinu Kópaskeri.
    Fyrir íbúa Kópaskers og Öxarfjarðar. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00.
  • Kjördeild V - Ráðhúsinu Raufarhöfn
    Fyrir íbúa Raufarhafnar og nágrennis. Kjörfundur er opinn kl. 10:00-18:00.

Kjörfundur í Skútustaðahreppi:

Kjörfundur var settur kl. 10 árdegis og stendur til kl. 18 síðdegis.  Kosið er í einni kjördeild í Skjólbrekku.

 


Athugasemdir

Nýjast