Börnin eru ekki bara framtíðin heldur eru þau nútíðin

Ungmennaráð Akureyrarbæjar auk starfsmanna og Hönnu Borg Jónsdóttur, lengst til hægri. Mynd/Aðsend
Ungmennaráð Akureyrarbæjar auk starfsmanna og Hönnu Borg Jónsdóttur, lengst til hægri. Mynd/Aðsend

Þann 28. febrúar síðastliðinn, var Stórþing ungmenna haldið í Hofi á Akureyri í þriðja sinn.

Akureyrarbær er barnvænt sveitarfélag og fellur þar undir að leita markvisst eftir röddum barna. Stórþingið er einn liður í því en tilgangurinn er að veita börnum og ungmennum sveitarfélagsins vettvang til að koma á framfæri skoðunum sínum og hugmyndum um þau atriði sem helst brennur á þeim og koma þeim skilaboðum áleiðis til bæjaryfirvalda.

Ungmennaráð bæjarins ber hitann og þungann af þinginu en ráðið setti þingið eftir að hafa kynnt sína starfsemi og undirstrikað mikilvægi þess að ungmennin sem þarna væru samankomin myndu ekki liggja á sínum skoðunum. Um 120 börn á aldrinum 12–18 ára tóku þátt og ræddu ýmis mál s.s. samgöngur, geðheilbrigði, tómstundir og skólamál.

Sem dæmi um það sem oft var nefnt var að götu- og göngustígalýsing mætti víða vera betri og að skoða þurfi betur hjólastólaaðgengi í bænum.

Stemmingin var gríðarlega góð, áhugaverðar og gagnlegar umræður áttu sér stað og enn og aftur kemur það í ljós hve mikill auður er í börnum í sveitarfélaginu. Gott er að muna að þau eru ekki bara framtíðin heldur eru þau nútíðin og mikilvægt að bjóða þeim aðkomu að lýðræðisborðinu.

UNICEF á Íslandi hefur stutt dyggilega við verkefnið Barnvænt sveitarfélag á Akureyri síðustu árin og var viðeigandi að Hanna Borg Jónsdóttir, verkefnisstjóri barnvænna sveitarfélaga hjá UNICEF, kom og flutti erindi um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og mikilvægi merkingarbærrar þátttöku barna.

Stórþing


Athugasemdir

Nýjast