10. janúar, 2010 - 15:33
Fréttir
Blakmaðurinn Poitr Kempisty er Íþróttamaður KA 2009 en kjöri hans var lýst í hófi í KA-heimilinu fyrr í dag, að
viðstöddu fjölmenni. Í öðru sæti í kjörinu varð knattspyrnumaðurinn Haukur Heiðar Hauksson og í þriðja sæti
júdókonan Helga Hansdóttir. Alls voru sex íþróttamenn tilnefndir í kjörinu, til viðbótar handknattleikskonurnar Arna Valgerður
Erlingsdóttir og Martha Hermannsdóttir og blakkonan Auður Anna Jónsdóttir.