Björn Heiðar settur aðstoðarslökkviliðsstjóri

Björn Heiðar Sigurbjörnsson hefur verið settur aðstoðarslökkviliðsstjóri hjá Slökkviliði Akureyrar. Hann tekur við stöðunni af Ingimari Eydal, sem fékk leyfi hjá Slökkviliðinu og réði sig til starfa hjá Isavia á Akureyrarflugvelli. Björn Heiðar hefur starfað í faginu frá 1985. Árið 1996 var hann ráðinn sem slökkviliðsstjóri á Vopnafirði og starfaði við það fram til 2006 þegar hann kom til starfa hjá Slökkviliði Akureyar.

Árið 2007 voru slökkviliðin á Austurlandi sameinuð undir Brunavarnir á Austurlandi og gegndi Björn þar aðstoðarslökkviliðsstjórastöðu. Í fyrra hóf Björn Heiðar síðan aftur störf hjá Slökkviliði Akureyar sem verkefnastjóri í eldvarnareftirliti. “Björn Heiðar hefur mikla og góða menntun og reynslu til starfans sem mun nýtast okkur vel,” segir Þorbjörn Guðrúnarson slökkviliðsstjóri á vef slökkviliðsins.

Nýjast