Efnisskrá : Anton Arensky: Píanótríó í d-moll Op. 32, Minoru Miki: Píanótríó, Ludvig van Beethoven:
Erkihertogatríóið Op.97. Bellarti Tríóið var stofnað í London árið 2004 af núverandi meðlimum þess sem þá
stunduðu nám við Konunglegu Akademíuna og Trinity tónlistarskólann. Frá stofnun hefur tríóið komið víða fram og
stöðugt bætast ný verk í fjölbreytta efnisskrá þess.
Framundan eru tónleikar í Tokyo og upptaka á tveimur geisladiskum með verkum japanskra og enska tónskálda fyrir útgáfufyrirtækið
Mittenwald.
Chihiro Inda fiðluleikari fæddist í Tókíó 1982. Meðan hún var við tónlistarnám í heimaborg sinni hlaut hún ýmis
verðlaun fyrir leik sinn; þriðju verðlaun í Novosibirsk International Competition fyrir unga fiðluleikara (1998), einnig þriðju verðlaun í Wolfgang
Marchner International Competition (2002) og fyrstu verðlaun í Toshiya Eto fiðluleikarakeppninni (2004). Hún hefur stundað nám hjá Kazuki Sawa, Asako
Yoshikawa, Wolfgang Marschner og tekið þátt í ýmsum námskeiðum, t.d. hjá Oleh Krysa, Hermann Krebbers, Thomas Brandis og Federico Agostini. Af einleik
hennar má telja Brahms fiðlukonsertinn með Japönsku fílharmoníuhljómsveitinni í fyrra. Chihiro stundar nú nám hjá Gyorgy Pauk
við The Royal Academy of Music í London og hefur hlotið ýmsa styrki til þess.
Pawel Panasiuk er fæddur í Póllandi. Eftir að hafa lokið meistaraprófi í sellóleik frá Chopin Akademíunni í Varsjá
fór hann til framhaldsnáms að Trinity College of Music í London og lauk þaðan Postgraduate Diploma. Hann hefur tekið þátt í ýmsum
námskeiðum m.a. hjá Tobias Kühne, Wanda Glowacka, Michael Strauss og Victoria Yagling. Pawel hefur haldið einleikstónleika fyrir selló og leikið með
fjölda hljómsveita og kammersveita, meðal annars í Póllandi, Bretlandi og á Íslandi.
Agnieszka Malgorzata Panasiuk, fæddist í Póllandi og stundaði nám við tónlistarakademíuna í Gdansk og lauk þaðan meistaraprófi
í píanóleik. Í Póllandi starfaði hún með ýmsum kammerhópum en kom einnig fram sem einleikari og lék m.a.
píanókonsert Griegs með Olsztyn Philharmonia. Þá stundaði Agnieszka nám við The Royal Academy of Music í London og fékk þar Krein
Scholarship til að nema hjá Michael Dussek og Iain Ledingham. Í Englandi lék hún með mörgum einleikurum og kammerhópum bæði á vegum
skólans og ýmissa tónleikasala, m.a. lék hún á hádegistónleikum St.Martin in the Fields, St.John´s Smith Square og Senat House
Bloomsbury. Hún hefur tekið þátt í ýmsum námskeiðum, m.a. hjá Jean-Paul Sevilla, Kevin Kenner, Joseph Seiger og Alexander Pablovic.