08. maí, 2009 - 11:55
Fréttir
Hörgá hefur í gegnum tíðinni oft flæmst víða um bakka sína og valdið skaða á ræktunarlöndum. Bændur hafa
því löngum reynt að hamla gegn því með grjótvörnum og öðrum ráðstöfunum. Í gær var verið
að færa stórgrýti sem fyrir löngu hafði verið sett við austurbakka árinnar á móts við Þelamerkurskóla, en
hafði þar misst gildi sitt, og nota það við að beina ánni frá vesturbakkanum á sömu slóðum.
Hörgá er 52 km að lengd með 710 km2 vatnasvið. Rennsli hennar hefur ekki verið mælt en það er mjög sveiflukennt. Þetta kemur fram
á vef Hörgárbyggðar.