Í frumvarpi til laga um mannvirki sem nú er til meðferðar á Alþingi er rætt um að ný stofnun, Byggingarstofnun, hafi eftirlit með framkvæmd laganna. Í greinargerð með frumvarpinu er lagt til að höfuðstöðvar stofnunarinnar verði í Reykjavík en að hið minnsta ein starfsstöð verði staðsett úti á landi. Á stjórnarfundi Eyþings nýlega lagði stjórnin til í umsögn sinni um frumvarpið að höfuðstöðvar Byggingarstofnunar verði á Akureyri. Undir það tekur bæjarráð Akureyrar sem fyrr segir.