20. ágúst, 2009 - 11:24
Fréttir
Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var lagður fram tölvupóstur frá Fjólu Guðjónsdóttur f.h. Sjóvá,
þar sem fram kemur að Sjóvá hafi áhuga á að afhenda íbúum Akureyrarbæjar svokallaðan verkfærakassa sem inniheldur
leiðbeiningar um hvernig hefja á nágrannavörslu.
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum að taka þátt í verkefni um nágrannavörslu og tilnefndi Dagnýju
Harðardóttur skrifstofustjóra Ráðhúss sem tengilið. Jafnframt skal kynna verkefnið fyrir hverfisnefndum bæjarins. Oddur Helgi
Halldórsson sat hjá við afgreiðslu málsins.