Bæjarráð Gjaldskrárhækkanir er varða barnafjölskyldur og fólk í viðkvæmri stöðu endurskoðaðar

Frá Akureyri        Mynd akureyri.is
Frá Akureyri Mynd akureyri.is

Akureyrarbær mun endurskoða þær gjaldskrárhækkanir sem tóku gildi um síðustu áramót er varða barnafjölskyldur og fólk í viðkvæmri stöðu og miða við að hækkun ársins 2024 verði ekki umfram 3,5%

Bæjarráð fjallaði um áskorun til sveitarfélaga vegna yfirlýsingar ríkisstjórnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamninga 2024 á fundi í morgun.

Bókun bæjarráðs er svohljóðandi:

 ,,Þrátt fyrir að skiptar skoðanir séu á því fyrirkomulagi sem lagt var til grundvallar aðkomu hins opinbera að kjarasamningum á almennum vinnumarkaði, þá er ljóst að niðurstaða um langtímasamninga hefur náðst og markmið þeirra um að stuðla að minnkun verðbólgu, lækkunar vaxta sem og að auka kaupmátt heimila í landinu er mikilvæg.

Akureyrarbær mun því í samræmi við áskorun Sambands íslenskra sveitarfélaga endurskoða gjaldskrárhækkanir sem tóku gildi um síðustu áramót er varða barnafjölskyldur og fólk í viðkvæmri stöðu og miða við að hækkun ársins 2024 verði ekki umfram 3,5%. Einnig skuldbindur Akureyrarbær sig til þess að tryggja gjaldfrjálsar skólamáltíðir fyrir nemendur í grunnskólum sveitarfélagsins í samstarfi við ríkisvaldið og með fyrirliggjandi kostnaðarþátttöku þess, frá og með ágúst 2024 til loka samningstímans.

Þá mun Akureyrarbær tryggja í húsnæðisáætlunum sínum og skipulagi nægt framboð byggingarsvæða og lóðir til skemmri og lengri tíma og hlutdeild í stofnkostnaði almennra íbúða, sem og að halda áfram því verkefni að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla."

 


Athugasemdir

Nýjast