Bæjarfulltrúi mótfallinn háhýsabyggð á Oddeyrinni og Tónatröð

Tölvulíkan af fyrirhugaðri háhýsabyggð á Oddeyrinni.
Tölvulíkan af fyrirhugaðri háhýsabyggð á Oddeyrinni.

Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Akureyrar, segist ekki vilja sjá háhýsabyggð á Oddeyrinni né Tónatröð. Hilda Jana greinir frá þessu á Facebooksíðu sinni í kvöld.

Fyrirhugaðar háhýsabyggingar á Oddeyrinni hafa vakið mikið umtal í bænum og verið gagnrýndar. Þá hafa bæjarbúar undanfarið kallað eftir áliti bæjarfulltrúa á byggingunum bæði á Oddeyri og Tónatröð.

"Þar sem ég er bæjarfulltrúi á Akureyri þá er ég oft beðin um skoðun mína á ýmsum málum og þá ekki síst skipulagsmálum. Til þess að tala alveg skýrt þá vil ég sjá metnaðarfulla uppbyggingu á Akureyri og að við náum að fara upp úr hjólförum stöðnunar. Við verðum að horfa til þess að þétta byggð og nýta landrými sem best. Ég tel hins vegar líka mjög mikilvægt að horfa til fjölmargra annarra þátta s.s. ásýndar, umhverfis, almannarýmis o.s.frv. Á þeim forsendum er ég ekki hlynnt framkomnum hugmyndum um háhýsi á Oddeyrinni og í Tónatröð og mun greiða atkvæði gegn tillögum þess efnis komi þær til meðferðar í bæjarstjórn," skrifar Hilda Jana.

Hilda Jana Gísladóttir.


Athugasemdir

Nýjast