Aukning umferðar um Vaðlaheiðargöng m.v janúar i fyrra

Umferð gegnum Vaðlaheiðargöng í janúar
Umferð gegnum Vaðlaheiðargöng í janúar

Umferð í janúar var 7% meiri en sama mánuð í fyrra í gegnum Vaðlaheiðargöng en alls voru farnar 28.342 ferðir sem jafngildir 914 ferðir að meðaltali á dag. Hlutfall umferðar um göngin var 91% en 9% fóru skarðið eða 86 ferðir að meðaltali á dag en færð í janúar hefur varið ágæt hér á norðurlandi og voru engin lokunardagar á Víkurskarði í janúar 2024 vegna veðurs.

Þetta kemur fram á Facebooksíðu Vaðlaheiðargangna.


Athugasemdir

Nýjast