Aukin ánægja íbúa með þjónustu Akureyrarbæjar

Akureyri. Mynd/María H. Tryggvadóttir.
Akureyri. Mynd/María H. Tryggvadóttir.

Nær allir íbúar Akureyrarbæjar eru ánægðir með sveitarfélagið sem stað til að búa á, samkvæmt niðurstöðum nýrrar þjónustukönnunar Gallup sem greint er frá á vef Akureyrabæjar. Yfirleitt eykst ánægja með þjónustu bæjarins eða stendur í stað milli ára, en í þremur flokkum hefur viðhorf til þjónustunnar aldrei mælst jákvæðara.

Gallup kannar árlega viðhorf íbúa gagnvart þjónustu stærstu sveitarfélaga landsins og voru 20 sveitarfélög mæld að þessu sinni, Akureyrarbær þar á meðal. Niðurstöður benda til þess að Akureyringar séu einna ánægðastir með umhverfismál sem endurspeglar áherslu sveitarfélagsins að vera leiðandi á því sviði. 84% svarenda sögðust ánægðir með þjónustu í tengslum við sorphirðu og 82% eru ánægðir með gæði umhverfis, en í þeim flokki mælist jákvæður og marktækur munur frá árinu á undan. Einnig mælist jákvæður og marktækur munur á ánægju með skipulagsmál sveitarfélagsins.

79% íbúa eru frekar eða mjög ánægðir með þjónustu Akureyrarbæjar heilt yfir og sama gildir um aðstöðu til íþróttaiðkunar. Ánægja með gæði umhverfis, þjónustu við barnafjölskyldur og þjónustu við fatlað fólk hefur ekki mælst hærri frá því Galllup hóf að mæla þessa þætti. Þá er ánægja með þjónustu Akureyrarbæjar heilt yfir og þjónustu í tengslum við sorphirðu á pari við hæstu gildi frá upphafi.

Á hinn bóginn eru tækifæri til úrbóta á ýmsum sviðum og segir á vef Akureyrarbæjar að afar mikilvægt sé að fá fram sjónarmið íbúa svo hægt sé að bregðast við og gera enn betur til þess að auka ánægju með þjónustu sveitarfélagsins.

Ítarlegra verður um fjallað um niðurstöður könnunarinnar í Vikublaðinu í næstu viku.

 


Athugasemdir

Nýjast