10. september, 2009 - 14:21
Fréttir
Fasteignir Akureyrarbæjar hafa auglýst eftir tilboðum í fullnaðarfrágang á Íþróttamiðstöðinni við Giljaskóla.
Eins og fram hefur komið hefur verktakinn sem sá um framkvæmdirnar sagt sig frá verkinu. Auglýst er eftir tilboðum í lokafrágang á
íþróttahúsi sem mun hýsa fimleika og leikfimikennslu.
Brúttóstærð byggingar er ríflega 2.700 fermetrar. Verkframkvæmdin er um það bil hálfnuð. Það sem er eftir er uppsetning á
þaki á íþróttasal, gluggaísetning og glerjun, hurðaísetning, frágangur á húsi að utan og innan og frágangur á
lóð. Verkinu skal lokið 15. júlí á næsta ári.