Auglýst eftir nýjum mótshaldara fyrir unglingalandsmót UMFÍ

Á stjórnarfundi Ungmennafélags Íslands, sem haldinn var í Reykjavík í dag, var ákveðið að auglýsa eftir nýjum mótshaldara fyrir Unglingalandsmót UMFÍ 2010.  Umsóknarfrestur verður til 10. janúar 2010.  

Grundarfjarðabær og Héraðssamband Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu (HSH) áttu upphaflega að hýsa mótið 2009 en fengu frest til 2010 vegna efnahagskreppunnar.  Grundarfjarðarbær er ekki tilbúinn til að standa undir þeim kröfum UMFÍ sem gerðar eru til mótsins og því er auglýst eftir mótshaldara 2010.

Nýjast