Steingrímur sagðist sem fjármálaráðherra hafa verið farinn að telja aurana í kassann því útlit hefði verið fyrir frábæra ferðamannavertíð í ár. Þrátt fyrir áföll vegna gossins og frestunar Landsmóts hestamanna þá væri mikilvægt að missa ekki kjarkinn og vel til fundið að fá þjóðina í lið með sér til þess að sannfæra ferðamenn um að fresta ekki komu sinni til Íslands. „Við veðjum á ferðaþjónustuna því hún er fljótvirkasta leiðin til tekjuöflunar fyrir þjóðina og á framtíðina fyrir sér."
Jungle Drum Emiliönu Torrini
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra upplýsti að myndbandið sem fólk yrði hvatt til þess að senda í þjóðarátakinu samanstæði af hressilegum og skemmtilegum myndum af fólki sem dansaði við Jungle Drum, lag og söng Emilíönu Torrini, við ólíkar aðstæður á Íslandi. Hún sagði að myndbandið væri af því tagi að fólk myndi langa til að senda það áfram á Netinu til vina og kunningja í útlöndum.
Snörp sókn á ferðamarkaði
Árni Gunnarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, sagði að snörp viðbrögð við ytri áföllum væru ákaflega þakkarverð og hann væri sannfærður um að með aðstoð þjóðarinnar yrði hægt að tryggja að ferðamannaárið yrði í besta lagi í ár eins og á síðustu árum. Á fimmtudaginn á milli kl. 13 og 14 er fólk eindregið hvatt til að senda glænýtt og skemmtilegt myndaband af síðunni http://www.inspiredbyiceland.is/ til fjölskyldu, vina, kunningja og viðskiptafélaga erlendis. Þeir sem ekki hafa tök á því á þeim tíma geta sent myndbandið á öðrum tímum dagsins eða hvenær sem er næstu vikurnar.