Átakið „Þjóðin býður heim“ formlega sett af stað í dag

"Ég hvet alla forstöðumenn ríkisstofnana og fyrirtækja í landinu til þess að gefa fólki tóm til þess á fimmtudaginn að senda vinum, kunningjum og viðskiptaaðilum kveðju og heimboð til Íslands í sumar", sagði Steingrímur J. Sigfússon, starfandi forsætisráðherra, þegar átakið „Þjóðin býður heim" var formlega sett af stað við Iðnó í dag að viðstöddum fulltrúum ferðaþjónustufyrirtækja, ríkisstjórnar, Reykjavíkurborgar og Útflutningsráðs.  

Steingrímur sagðist sem fjármálaráðherra hafa verið farinn að telja aurana í kassann því útlit hefði verið fyrir frábæra ferðamannavertíð í ár. Þrátt fyrir áföll vegna gossins og frestunar Landsmóts hestamanna þá væri mikilvægt að missa ekki kjarkinn og vel til fundið að fá þjóðina í lið með sér til þess að sannfæra ferðamenn um að fresta ekki komu sinni til Íslands. „Við veðjum á ferðaþjónustuna því hún er fljótvirkasta leiðin til tekjuöflunar fyrir þjóðina og á framtíðina fyrir sér."

Jungle Drum Emiliönu Torrini

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra upplýsti að myndbandið sem fólk yrði hvatt til þess að senda í þjóðarátakinu samanstæði af hressilegum og skemmtilegum myndum af fólki sem  dansaði við Jungle Drum,  lag og söng Emilíönu Torrini, við ólíkar aðstæður á Íslandi. Hún sagði að myndbandið væri af því tagi að fólk myndi langa til að senda það áfram á Netinu til vina og kunningja í útlöndum.

Snörp sókn á ferðamarkaði

Árni Gunnarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, sagði  að snörp viðbrögð við ytri áföllum væru ákaflega þakkarverð og hann væri sannfærður um að með aðstoð þjóðarinnar yrði hægt að tryggja að ferðamannaárið yrði í besta lagi í ár eins og á síðustu árum. Á fimmtudaginn á milli kl. 13 og 14  er fólk  eindregið hvatt til að senda glænýtt og skemmtilegt myndaband af síðunni http://www.inspiredbyiceland.is/ til fjölskyldu, vina, kunningja og viðskiptafélaga erlendis. Þeir sem ekki hafa tök á því á þeim tíma geta sent myndbandið á öðrum tímum dagsins eða hvenær sem er næstu vikurnar.

Nýjast