Arna Valgerður Erlingsdóttir, handknattleikskona frá Akureyri, hefur samið við Fylki um að leika með liðinu í vetur í N1-deild kvenna. Arna þurfti að finna sér nýtt lið eftir að KA/Þór hætti við að senda lið til þátttöku í úrvalsdeild.
Frá þessu er greint á mbl.is.