Arna Rún Óskarsdóttir öldrunarlæknir til HSN

Arna Rún Óskarsdóttir öldrunarlæknir hefur verið ráðin til starfa hjá HSN
Arna Rún Óskarsdóttir öldrunarlæknir hefur verið ráðin til starfa hjá HSN

Arna Rún Óskarsdóttir öldrunarlæknir hefur verið ráðin til starfa hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands.

Arna Rún hefur um árabil starfað sem öldrunarlæknir á Sjúkrahúsinu á Akureyri þar sem hún var forstöðulæknir endurhæfingar- og öldrunarlækninga. Þá hefur hún verið formaður Færni- og heilsumatsnefndar heilbrigðisumdæmis Norðurlands til fjölda ára.

Hún mun starfa með heimahjúkrun á Akureyri, taka þátt í starfsemi hjúkrunardeilda HSN á Blönduósi, Sauðárkróki, Fjallabyggð og Húsavík og veita ráðgjöf til starfsfólks. Arna Rún tekur til starfa á komandi sumri.

„Eldra fólki fjölgar á starfssvæði HSN eins og annars staðar. Starfsfólk hjúkrunardeilda og heimahjúkrunar HSN vinnur mikið og gott starf í þágu aldraðra sem búa heima þrátt fyrir heilsufarsvanda og skerta færni. Mitt hlutverk verður m.a. að vinna með starfsfólki heimahjúkrunar við að þróa áfram og bæta þjónustu við þennan hóp aldraðra með það að markmið að auka lífsgæði og getu þeirra til sjálfsbjargar,“ segir Arna Rún í tilkynningu á vef HSN.


Athugasemdir

Nýjast