Andrésar andarleikarnir haldnir í 48 sinn

Tæplega 900 börn skráð til leiks á Andrés    Mynd  Pedrómyndir
Tæplega 900 börn skráð til leiks á Andrés Mynd Pedrómyndir

Andrésar andarleikarnir í skíðaíþróttum verða haldnir í Hlíðarfjalli í næstu viku, dagana 24.-27. apríl. Skíðafélag Akureyrar heldur leikana og er þetta í 48. sinn sem efnt er til þeirra.

Leikarnir eru fjölmennasta skíðamót landsins með tæplega 900 keppendur á aldrinum 4-15 ára ár hvert. Þeim fylgja þjálfara, fararstjórar, foreldrar og fjölskyldur og má því gera ráð fyrir að um 3-4000 manns sæki leikana með einum eða öðrum hætti.

Andrésarleikarnir eru þannig mikilvægur viðburður fyrir bæjarbúa, fyrirtækin í bænum, barnamenningu bæjarins, ásamt því að vera mikilvægasti einstaki vetraríþróttaviðburður sem fram fer hér á svæðinu á hverju ári.

Um langt skeið hefur verið keppt bæði í alpagreinum skíðaíþrótta sem og skíðagöngu, en árið 2012 var í fyrsta skipti keppt á snjóbrettum og hefur sú grein verið að eflast og stækka innan leikanna. Einnig hefur verið keppt í svokölluðum stjörnuflokki s.l. u.þ.b. 10 ár, en þar keppa fatlaðir eða hreyfihamlaðir íþróttamenn.

Kynna skíðaskotfimi

Nú um nokkurra ára skeið hefur 4 og 5 ára börnum einnig boðið að taka þátt í leikunum. Þessi börn taka þátt í leikjabraut þar sem allt snýst um að vera með og skemmta sér, en ekki að sigra Í ár eru 86 börn á þessum aldri skráð til leiks.

Nýlunda í ár er að á leikunum verður kynning á skíðaskotfimi sem hefur verið vaxandi íþrótt á Íslandi undfarin ár, en greinin nýtur mikilla vinsælda víða um heim.

Aðstæður í Hlíðarfjalli eru eins og þær gerast allra bestar og er mikill snjór á öllu svæðinu,

Undirbúningur mótsins hefur staðið yfir síðan s.l. haust og búast mótshaldarar við miklu fjöri á leikunum í ár enda Andrésarleikarnir hápunktur hvers skíðavetrar hjá börnunum.

 Metfjöldi í skíðagöngu 

Nú eru 876 börn skráð frá 16 félögum á Íslandi. Flestir iðkendur koma frá heimamönnum í Skíðafélagi Akureyrar eða 156 keppendur, en Skíðadeild Ármanns eru næst fjölmennastir með 104 þátttakendur.

Í ár er fjölgun í öllum greinum skíðaíþróttarinnar, en metfjöldi tekur þátt í skíðagöngu á leikunum, 186 börn eru skráð þar til leiks. Alpagreina þátttakendur eru 638 og 92 taka þátt í snjóbretta greinum. Auk þess eru mörg börn að taka þátt í fleiri en einni grein skíðaíþróttarinnar.

Að venju verða leikarnir settir í Íþróttahöllinni á Akureyri síðasta vetrardag miðvikudagskvöldið 24. apríl að lokinni myndarlegri skrúðgöngu allra þátttakenda frá Lundarskóla/Íþróttasvæði KA kl. 19. Fimmtudag, föstudag og laugardag er svo keppt í öllum greinum


Athugasemdir

Nýjast