Andrea Weber opnar myndlistasýningu í Deiglunni

Andrea Weber hefur að undanförnu dvalið í gestavinnustofu Listasafnsins á Akureyri.
Andrea Weber hefur að undanförnu dvalið í gestavinnustofu Listasafnsins á Akureyri.

Andrea Weber sem hefur að undanförnu dvalið í gestavinnustofu Listasafnsins á Akureyri opnar myndlistasýningu sína sem hún kallar Secret Chrystalizationkl.14  laugardaginn 4.mars í Deiglunni, sal Gilfélagsins. Klukkan 14.30 kynnir listamaðurinn verkin.

Í listsköpun vinnur Andrea mikið með hugmyndir um tíma og rúm og sambandið milli líkama og umhverfis. Einnig vinnur hún út frá abstract málverkum sem gerð eru eftir forskrift er nefnist Weathertranscription, en auk þess gerir hún innsetningar, fremur gjörninga og fleira.

Andrea Weber er menntuð í ljósmyndun frá listaháskólanum í Essen, Þýskalandi, og Beaux Arts í París, Frakklandi. Hún hefur einnig menntun í Qi Gong og myndlistarkennslu. Weber býr og starfar í París, en dvelur um þessar mundir í gestavinnustofu Listasafnsins.

Sýningin er einnig opin. sunnudaginn 5. mars. frá 14 - 17.
Athygli er vakin á kynningu Andreu kl. 14.30 á laugardaginn sem í hennar eigin orðum verður „performative reading“ og tekur um það bil 30 min. 

Wber


Athugasemdir

Nýjast