Alls bárust 30 athugasemdir til viðbótar við skipulagsbreytingu

Alls bárust 30 athugasemdir við tillögu að deiliskipulagsbreytingu á suðarhluta miðbæjarins, til viðbótar við þá undirskriftalistana, með rúmlega 1.850 nöfnum, sem afhentir voru bæjaryfirvöldum í síðustu viku, þar sem  þessum hugmyndum er mótmælt.  

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna rann út um miðja síðustu viku. Deiliskipulagsbreytingin afmarkast af Drottningarbraut í austri, Austurbrú í suðri, Hafnarstræti í vestri og bílastæðum í norðri. Skilgreindar eru m.a. tvær nýjar lóðir, Hafnarstræti 78, þar sem gert er ráð fyrir byggingu veitingastaðar og Hafnarstræti 80, þar sem gert er ráð fyrir þjónustustarfsemi fyrir bifreiðastöð og sjálfsafgreiðslustöð fyrir eldsneyti. Ný aðkoma að svæðinu verður frá Drottningarbraut. Málið fór fyrir skipulagsnefnd í dag, þar sem farið var yfir þær athugasemdir sem bárust.

Nýjast