Alcoa kynnir matsáætlun fyrir álver á Bakka

Alcoa hefur lagt fram tillögu að matsáætlun fyrir álver á Bakka við Húsavík, með allt að 346.000 tonna framleiðslugetu. Tekið er á móti athugasemdum vegna tillögunnar til 6. nóvember næstkomandi. Í tillögunni er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst í stuttu máli og með hvaða hætti framkvæmdin samræmist skipulagi svæðisins. Þar er einnig greint frá því á hvaða framkvæmda- og umhverfisþætti mest áhersla verði lög í frummatsskýrslu. Einnig er fjallað um hvaða athuganir og rannsóknir eru fyrirhugaðar á vegum Alcoa og yfirlit gefið yfir þær upplýsingar sem fyrir liggja og þegar hefur verið aflað. Þá verður fjallað um undirbúning framkvæmda og sett fram yfirlit yfir þá hagsmunaaðila og stofnanir sem samráð verður haft við í matsferlinu.

Í kjölfar tillögu að matsáætlun er unninn frummatsskýrsla og þar á eftir matsskýrsla en gert er ráð fyrir að álit Skipulagsstofnunar á framkvæmdinni liggi fyrir á seinni hluta næsta árs. Þessi tillaga að matsáætlun mun liggja frammi til kynningar til 6. nóvember og getur fólk gert athugasemdir við hana með því að koma skriflegum ábendingum á framfæri við Skipulagsstofnun. Áformað er að hefja framleiðslu á áli á árabilinu 2012 til 2014, háð því hvenær orka er tilbúin til afhendingar. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Nýjast