Akureyringar röðuðu inn verðlaunum á Andrésar andar leikunum

Glæsilegur hópur Skíðafélags Akureyrar sem tók þátt í Andrésar andar leikunum
Glæsilegur hópur Skíðafélags Akureyrar sem tók þátt í Andrésar andar leikunum

Andrésar Andarleikarnir í skíðaíþróttum fóru fram í 42.skipti á Akureyri um síðustu helgi í Hlíðarfjalli og voru keppendur 780 talsins. Það er Akíðafélag Akureyrar sem stendur að leikunum sem er stærsta skíðamót landsins. Iðkenndur voru á aldrinum 5-15 ára og þeim fylgjaþjálfarar, fararstjórar, foreldrar og fjölskyldur, og er talið að alls hafi 2.500-3.000 manns sótt leikana.

Um langt skeið hefur verið keppt bæði í alpagreinum skíðaíþrótta sem og skíðagöngu en árið 2012 var í fyrsta skipti keppt á snjóbrettum og hefur sú grein verið að eflast og stækka innan leikanna. Einnig hefur verið keppt í svokölluðum stjörnuflokki um nokkurra ára skeið en þar keppa fatlaðir eða hreyfihamlaðir íþróttamenn.

Skíðafélag Akureyrar átti 126 keppendur á mótinu og komust margir þeirra á verðlaunapall.

Andrés 2017

Andrésartitlar SKA

Friðrik Kjartan Sölvason Stórsvig 6 ára

Natan Dagur Fjalarsson Stórsvig 7 ára og Brettastíll 6-8 ára

Aníta Mist Fjalarsdóttir Stórsvig og Svig 9 ára

Sonja Björg Sigurðardóttir Stórsvig og Svig 10 ára

Silvía Mist Árnadóttir Stórsvig 11 ára

Aron Máni Sverrisson Stórsvig 14 ára

Fríða Kristín Jónsdóttir Svig 15 ára

SKA nældi í  31 önnur verðlaun í alpagreinum

Bryndís Huld Jónasdóttir Brettakross 6-8 ára

Júlíetta Iðunn Tómasdóttir Brettastíll 9 ára

Alís Helga Daðadóttir Brettakross 9 ára

Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir Brettakross 10 ára

Lilja Rós Steinsdóttir Brettastíll 13 ára

Anna Karen Davíðsdóttir Brettakross 13 ára

Jökull Bergmann Kristjánsson Brettastíll 9 ára

Benedikt Friðbjörnsson Brettastíll og Brettakross 12 ára

Birkir Þór Arason Brettastíll 13 ára

Kolbeinn Þór Finnsson Bettakross 13 ára

Baldur Vilhelmsson Brettastíll og Brettakross 14 ára

Tómas Orri Árnason Brettastíll og Brettakross 15 ára

SKA náði 11 önnur verðlaunum á brettum

Fannar Ingi Sigmarsson 2 km frjáls aðferð 10 ára

Einar Árni Gíslason 2 km skicross 12-13 ára

Egill Bjarni Gíslason 2 km skicross og skiptigöngu 14-15 ára

Fanney Rún Stefánsdóttir 2 km skicross og skiptigöngu 14-15 ára

SKA náði 17 verðlaunum í göngu

Í boðgöngu varð sérsveit SKA 9-11 ára í 3. sæti og sérsveit SKA 12-15 ára í 1. Sæti

Þá átti SKA einn keppanda í Stjörnuflokki (Flokkur barna með fötlun) sem var Kristján Logi Vestmann Kárason.

 

 

 


Athugasemdir

Nýjast