Akureyri mætir Haukum í síðasta heimaleik ársins í kvöld

Í kvöld hefst 9. umferð N1- deildar karla í handbolta með tveimur leikjum og beinast flest augu að leik Akureyri Handboltafélags og Hauka sem eigast við í Íþróttahöll Akureyrar. Fyrir leikinn munar aðeins einu stigi á liðunum en Haukar hafa 12 stig á toppi deildarinnar en Akureyri 11 stig í þriðja sæti en með sigri í kvöld tylla norðanmenn sér á topp deildarinnar.

Leikurinn í kvöld hefst kl. 19:00 og fer forsala á miðum fram á Glerártorgi í dag milli 14:00 og 17:30.

Nánar er fjallað um leikinn í Vikudegi í dag.

Nýjast