Akureyri Hótel við Jaðarsvöll auglýst á ný með breyttum forsendum

Fyrirhugað hótel mun rísa  innan þess svæðis sem græni kassinn afmarkar
Fyrirhugað hótel mun rísa innan þess svæðis sem græni kassinn afmarkar

„Við vorum auðvitað að vona að það kæmi fram tilboð en í ljósi ástandsins almennt má segja að þetta kom ekki á óvart,“ segir Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi Akureyrarbæjar.

Auglýst var eftir kauptilboði í byggingarétt hótels á Jaðarsvelli og sóttu 8 aðilar útboðsgöng, en þegar fresti til að gera kauptilboð lauk bárust engin tilboð. Pétur segir að næstu skref verði að auglýsa á ný eftir kauptilboðum en með breyttum forsendum. Honum hefur verið falið af skipulagsráði að endurskoða úthlutunarskilmála þar sem áhersla verður á að leita að hentugum samstarfaðila um uppbyggingu hótel frekar en hæstbjóðenda.

 


Athugasemdir

Nýjast