Akureyrarkirkja - Hafnasamlagið styrkir rekstur salerna

HN styður rekstur salernis Akureyrarkirkju.    Mynd úr safni.
HN styður rekstur salernis Akureyrarkirkju. Mynd úr safni.

Sóknarnefnd Akureyrarkirkju hefur óskað eftir stuðningi Hafnasamlags Norðurlands til að fjármagna framkvæmdir við þak safnaðarheimilisins.  Í erindinu þakkar sóknarnefndin jafnframt fyrir árlegan styrk HN við rekstur salernis í Akureyrarkirkju.

Hafnastjórn getur ekki orðið við því að veita styrk til viðhalds á fasteignum kirkjunnar segir í fundargerð.  Varðandi rekstur salerna í Akureyrarkirkju samþykkir hafnastjórn  aftur á móti að styrkja sóknarnefnd fyrir sumarið 2024 um 300 þúsund krónur.

 


Athugasemdir

Nýjast