07. apríl, 2008 - 16:40
Fréttir
Matsnefnd eignarnámsbóta hefur kveðið upp úrskurð í máli Akureyrarbæjar gegn Svefni og heilsu ehf. vegna kaupa bæjarins á
húsnæði og lóðarréttindunum sem að öllu leyti eða að hluta tilheyra Svefni og heilsu, vegna framkvæmda við stækkun og
endurbætur verslanamiðstöðvarinnar Glerártorgs.
Samkvæmt matsnefndinni ber Akureyrarbæ að greiða 217,9 milljónir króna fyrir eignirnar. Krafa Svefns og heilsu var mun hærri eða rúmlega einn og
hálfur milljarður króna. Deila Svefns og heilsu og Akureyrarbæjar snýst fyrst og fremst um niðurrif byggingar sem er að fullu í eigu SMI ehf. en er
áföst húsnæði Svefns og heilsu.
Málið snýst einnig um niðurrif hluta tengibyggingar sem er 15% í eigu Svefns og heilsu og tengdi áður húsnæði verslunarinnar við
húsnæði gömlu Sambandsverksmiðjanna sem hafa þegar verið fjarlægðar. Niðurrifið er samkvæmt gildandi deiliskipulagi sem heimilar
stækkun verslanamiðstöðvarinnar. Mikilvægt er að byggingarnar víki til þess að tryggja eðlilegt aðgengi að nýju og endurbættu
Glerártorgi. Ekki er hins vegar nauðsynlegt að rífa verslunarhúsnæði Svefns og heilsu og Húsgagnanna heim.
Eigandi Svefns og heilsu varð ekki við ósk Akureyrarbæjar um umbeðið niðurrif og ekki náðist samkomulag um kaupverð við eigandann. Því
var leitað til Matsnefndar eignarnámsbóta um að meta eðlilegt kaupverð eigna Svefns og heilsu. Í framhaldinu fór eigandinn fram á að
bærinn yfirtæki allar eignir hans við Dalsbrautina, þ.e. verslunarhúsnæði, lagerhúsnæði og tengibyggingu auk lóðaréttinda.
Akureyrarbær hefur kaupanda að umræddum eignum og verður því ekki fyrir fjárhagslegum útgjöldum vegna þessa úrskurðar.
Akureyrarbær fagnar niðurstöðu nefndarinnar en harmar að ekki skyldi hafa náðst sátt í málinu, segir í fréttatilkynningu.