Áhrif verkfalls félagsfólks í BSRB á þjónustu Akureyrarbæjar

Það er rólegt við Sundlaug Akureyrar í verkfallinu         Mynd  Vb
Það er rólegt við Sundlaug Akureyrar í verkfallinu Mynd Vb

Verkfall félagsfólks í BSRB hefur nokkur  á  þjónustu á vegum Akureyrarbæjar sem í sumum tilfellum skerðist  eða í versta falli leggst  niður á meðan verkfalli stendur.  Af því helsta má nefna: 

  • Þjónusta ferlibíla verður verulega skert og strætisvagnar bæjarins ganga ekki.
  • Sundlaugarnar á Akureyri verða lokaðar, sem og laugarnar í Grímsey og Hrísey.
  • Fjölskyldugarðurinn við Sundlaug Akureyrar verður lokaður.
  • Íþróttahúsið við Glerárskóla og Íþróttahöllin á Akureyri verða lokuð.
  • Þjónusta frá Umhverfismiðstöð skerðist verulega, þ.m.t. sláttur og hirðing í bæjarlandinu.
  • Malbikunarstöðin starfar ekki og þar af leiðandi frestast flestar gatna- og stígaframkvæmdir.
  • Þá mun opnunartími Ráðhúss Akureyrarbæjar skerðast en hann verður frá kl. 11.00 til 12.00. Viðskiptavinum er bent er á að nýta sér rafræna þjónustu eins og kostur er svo sem  tölvupóst, netspjall og ábendingargátt á heimasíðu

Athugasemdir

Nýjast