Áhersla á öldrun og öldrunar- fræði í framhaldsnámi við HA

Á vormisseri 2009 mun heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri bjóða í fyrsta sinn upp á framhaldsnám þar sem áhersla verður lögð á öldrun og öldrunarfræði. Aldraðir eru sá hópur í þjóðfélaginu sem vex hvað hraðast og heilsa, virkni og vellíðan þessa aldurshóps er einn af mikilvægum hornsteinum okkar þjóðfélagsins.  

Markmiðið með þessu námsframboði Háskólans á Akureyri er að útskrifa einstaklinga sem eru vel í stakk búnir til að takast á við þær margvíslegu áskoranir sem bíða fagfólks í öldrunarþjónustu í dag. Forstöðumaður þessarar námsleiðar er Sólveig Ása Árnadóttir, lektor við HA. Nemendur geta valið um 40 ECTS eininga diplómanám eða 120 ECTS eininga meistaranám í heilbrigðisvísindum með áherslu á öldrun. Kjarnanámsskeiðið í þessum námslínum er Öldrun og heilbrigði í íslensku samfélagi (10 ECTS eininga námsskeið) sem verður kennt á vorönn 2009 og síðan annað hvert ár Sjá upplýsingar á heimasíðu.

Umsóknarfrestur fyrir þessa námslínu er 15. desember n.k. og innritunargjald fyrir vorönn 2009 er 22.500 kr. Frekari upplýsingar má fá á skrifstofu heilbrigðisdeildar HA (s: 460 8036, netfang: larag@unak.is) og í Handbók um diplóma- og meistaranám í heilbrigðisvísindum með áherslu á öldrun. Sjá handbók.

Nýjast