Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu en þar segir ennfremur: „Með
þessari ákvörðun er stefnt að nokkru hægari uppbyggingu viðmiðunarstofns og hrygningarstofns en áður hafði verið áformað.
Þessi ákvörðun er tekin í ljósi þeirra efnahagserfiðleika sem þjóðarbúið á við að etja og með
hliðsjón af jákvæðari vísbendingum um stöðu þorskstofnsins sem fram komu í stofnmælingu botnfiska sl. haust. Í þeirri
mælingu kom fram að heildarvísitala þorsks væri mun hærri en undanfarin ár.
Jafnframt er gert ráð fyrir að á næsta fiskveiðiári verði heildaraflamark í þorski eigi lægra en 160 þúsund tonn.
Þótt uppbygging viðmiðunar- og hrygningarstofn þorsks verði hægari en fyrirhugað var, er þessi ákvörðun í samræmi við
yfirlýst markmið um sjálfbærar veiðar á þorski sem og öðrum nytjastofnum hér við land."