Æfingar í fullum gangi á Dubbeldusch hjá LA

Æfingar eru nú í fullum gangi hjá Leikfélagi Akureyrar á nýju íslensku leikriti, Dubbeldusch, eftir Björn Hlyn Haraldsson. Hér er á ferðinni ljúfsárt verk um mann sem stóð frammi fyrir erfiðu vali fyrir þrjátíu árum en nú bankar fortíðin upp á. Sýningin verður frumsýnd í Rýminu á Akureyri 13. mars. Björn Hlynur leikstýrir verkinu sjálfur, Hilmar Jónsson leikur aðalhlutverkið en hann hefur ekki leikið að ráði á sviði síðan blómlegur leikstjórnarferill hans hófst. Aðrir leikarar eru: Harpa Arnardóttir, Davíð Guðbrandsson, María Heba Þorkelsdóttir, Maríanna Clara Lúthersdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Rýmið er samstarfsverkefni LA og TM en fyrr í vetur voru Ökutímar sýndir þar. Þeir viku fyrir fullu húsi til að rýma til fyrir Dubbeldusch. Ökutímar verða sýndir á fjölum í Reykjavík síðar á árinu.

Nýjast