Aðventuævintýrið í sveitinni hefst í Jólagarðinum á laugardag

Litli Þorlákur er haldinn hátíðlegur í Jólagarðinum í Eyjafjarðarsveit þann 29. nóvember en það er laugardagurinn fyrir fyrsta í aðventu. Þennan dag er fólk að klára undirbúninig aðventunnar, huga að kransinum, jóladagatölum, aðventukertunum og Húskarlahangikjötinu sem allt þarf að vera komið á sinn stað fyrir fyrsta sunnudag í aðventu.  

Þessi dagur hefur eftir því sem árin hafa liðið orðið mikill stemnings-dagur í Jólagarðinum, svona eins og lítill Þorlákur þar sem virkilega er dekrað við þá sem heimsækja Jólagarðinn. Aðstandendur vonast til að sem flestir kíki við og njóti þess að aðventan er að hefjast.

Nýjast