Aðalstjórn Þórs fær óskorað umboð til samninga við Akureyrarbæ

Nú rétt í þessu var að ljúka almennum félagsfundi í Íþróttafélaginu Þór. Rétt rúmlega 100 manns sóttu fundinn og voru umræður fjörugar. Í lok fundarins var samþykkt ályktun þess efnis að aðalstjórn félagsins fær óskorað umboð til að ganga til samninga við Akureyrarbæ um uppbyggingu á félagssvæði Íþróttafélagsins Þórs.

Sigfús Helgason, formaður Þórs, mun þó ekki leiða félagið í viðræðum við Akureyrarbæ, þetta tilkynnti hann í lok fundar. Ástæðuna sagði Sigfús vera að stór orð hefðu fallið um persónu hans á lokuðum fundum hjá stjórnarmönnum bæjarins. Sigfús sagði að við slíkar aðstæður væri ekki hægt að vinna og fól hann því varaformanninum, Árna Óðinssyni, að leiða félagið í viðræðum við Akureyrarbæ.

Fram kom í máli Sigfúsar að á fundi Sigrúnar Bjarkar Jakobsdóttur bæjarstjóra og Ólafs Jónssonar, formanns Íþróttaráðs Akureyrar, með fulltrúum Ungmennafélags Akureyrar og fulltrúa frá UMFÍ í dag hafi það verið ákveðið að uppbygging frjálsíþróttasvæðis fyrir Landsmótið árið 2009 verði í Naustahverfi.

Nýjast