32 nýjar íbúðir fyrir öryrkja á næstu fimm árum

Guðbrandur Sigurðsson framkvæmdastjóri Brynju leigufélags og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Ak…
Guðbrandur Sigurðsson framkvæmdastjóri Brynju leigufélags og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri handsala viljayfirlýsinguna

mth@vikubladid.is

Viljayfirlýsing á milli Akureyrarbæjar og Brynju leigufélags ses. um uppbyggingu á íbúðum öryrkja á Akureyri 2022 til 2026 hefur verið undirrituð.

Brynja á nú þegar 42 íbúðir í bænum sem leigðar eru einstaklingum eða Akureyrarbæ í tengslum við rekstur á íbúðaúrræðum fyrir öryrkja. Stefnt er að því að teknar verði í notkun 32 nýjar íbúðir á árunum 2022 til 2026, eða sex til sjö íbúðir að meðaltali á ári, innan ramma laga nr. 52/2016 um almennar íbúðir sem byggir á 18% stofnstyrk frá ríkinu og 12% stofnstyrk frá viðkomandi sveitarfélagi, í þessu tilfelli Akureyrarbæ.

Unnin verður þarfagreining um samsetningu íbúðarúrræða, þ.e.a.s. þörfina fyrir stakar íbúðir í stærri fjölbýlishúsum, minna fjölbýli með góðu aðgengi fyrir fatlaða og raðhús með góðu aðgengi fyrir fatlaða. Þá þarf að skoða hlutfallið milli 2ja og 3ja herbergja íbúða. Almennt hefur Brynja horft til þess að 2/3 af safni félagsins séu 2ja herbergja íbúðir og að 1/3 sé 3 herbergja íbúðir.

280 milljónir á ári í fimm ár

Áætlað umfang verkefnisins er um 280 milljónir króna á ári á þessu fimm ára tímabili og myndi það koma verulega til móts við þarfir öryrkja sem eru á biðlista eftir félagslegu húsnæði á Akureyri, bæði hjá Akureyrarbæ og Brynju.

Akureyrarbær og Brynja haft átt gott samstarf um úthlutun þeirra íbúða sem eru í eigu Brynju á Akureyri.  Skoða á hvort hagkvæmt sé að Akureyrarbær kaupi einhverjar af þeim eignum sem Brynja leigir sveitarfélaginu. Þetta er gert til einföldunar og til að tryggja bætta hagkvæmni í rekstri eignasafnsins. Ef til sölu íbúða kemur  er ætlunin að bæta sama fjölda við markmið viljayfirlýsingarinnar um uppbyggingu á húsnæði fyrir öryrkja á Akureyri.


Athugasemdir

Nýjast