10 bestu vinsælt Hlaðvarp

Akureyringurinn Ásgeir Ólafsson Lie hefur nú  tekið upp 100 þætti af hlaðvarpsþætti sínum 10 bestu en þættirnir eru teknir er upp hér á Akureyri og er  í dag einn vinsælasti þátturinn í sínum flokki á landsvísu.  

,,Dyggur hlustandi hafði samband og spurði mig hvort ég gæti tekið upp fjölskyldumeðlim fyrir lokaðan hóp sem yrði ekki birtur opinberlega á minni rás.  Ég samþykkti það, og eftir að hafa talað við hann í einhverjar 90 mínútur um vegferð hans í fjörugu og skemmtilegu viðtali þá langaði honum að fleiri úr fjölskyldunni gerðu það sama.  Sem svo gerðist, og á þessi fjölskylda nú tvo þætti um tvo fjölskyldumeðlimi sem þau geyma í lokuðum hópi fyrir ömmur, afa, dætur, syni, börn og barnabörn að hlusta á hvenær sem er.

Þetta sló svona rækilega í gegn að tveir til viðbótar höfðu samband í gegnum þessa tvo aðila með sömu bón. Þeir þættir hafa nú verið teknir upp og hef ég því ákveðið að taka upp 10 þætti til viðbótar með þessu fyrirkomulagi í anda 10 bestu, með eða án tónlistarinnar gegn sanngjörnu gjaldi,, segir Ásgeir Í færslu sinni á Facebook.

,,Það mætti segja að þetta sé gullin leið að tryggja sér minningar í formi hljóðs fyrir viðmælendur sjálfa að rifja upp sína ævi og fyrir alla hina í fjölskyldunni einnig, segir Ásgeir aðspurður um málið.

Hægt er að senda Ásgeiri póst á asgeirpodcast@gmail.com fyrir frekari upplýsingar.  

 Ásgeir  Ólafsson Lie heldur úti einum vinsælasta hlaðvarpsþætti landsins  10 bestu.

 


Athugasemdir

Nýjast