3000 algörlega uppdiktaðir þingeyskir stjörnuspádómar

Fyrrverandi stjörnuspekingur á Degi á Akureyri. Mynd: Tryggvi Jóhannsson.
Fyrrverandi stjörnuspekingur á Degi á Akureyri. Mynd: Tryggvi Jóhannsson.

Þegar ég var blaðamaður á Degi á Akureyri, hafði ég m.a. þann starfa í ein tvö ár að sjá um Stjörnuspá blaðsins. Og þurfti því daglega að semja 12 spádóma, einn fyrir hvert stjörnumerki, 4-5 daga vikunnar, þannig að spádómarnir hafa verið þetta 3-4000 talsins þegar yfir lauk. Og voru að sjálfsögðu ekkert vitlausari og hittu ekkert síður í mark en spádómar frægustu stjörnuspámanna heimsins. Hér eru fáein sýnishorn:

-Láttu ekki vanhugsaðar skyndiákvarðanir koma þér í koll. Þú kaupir ekki heilt hótel þó þig vanti gistingu í eina nótt.

-Hleyptu engum inn undir lopapeysuna. Þar er fólk nefnilega komið í skotfæri við hjartað.

-Tækifærissinninn ruglar aldrei saman skynfærum og kynfærum.

-Slíðraður pennann og reyndu að draga til stafs með sverðinu. Ofbeldi er allt sem þarf.

-Illt er að setjast snakillur að snæðingi. Og hart er að vera nakinn úti í næðingi.

-Betra er að vera ólympíumeistari á eigin heimili, en síðastur í sínum riðli í Sydney.

-Þú vaknar með andfælum við fótatak fílanna í forstofunni. Fjárfestu í þrengri útidyrum.

-Skelltu þér á héraðsmót í frjálsum. Þar falla horskir bændur aldrei á lyfjaprófum, en fella  æfinlega byrjunarhæðina í hástökki með reisn.

-Reyndu að brjótast út úr möppudýragarðinum. Rotaðu verðina með skjalatöskunni.

-Það er átakaminna að vera lauf í logni en fjöður í fjúki. Veldu þér hlutverk við hæfi.

-Hundasúran er sæt í sumra munni.

-Þú dettur í lukkupottinn og fótbrotnar – enda fallið hátt frá barmi og ofan í botn.

-Svefnleysið lagast ekki með rófulausum hjásvefni.

-Skárra er að vera skálkur í skjóli en öðlingur í úrhelli.

-Lífið leikur við þig, en leikur þú við lífið? Leiktu á lífið. JS

 


Athugasemdir

Nýjast