Tóku við silfrinu á frisbíæfingu

Er ekki gott silfur gulli betra?     Mynd akureyri.is
Er ekki gott silfur gulli betra? Mynd akureyri.is

Íþróttagarparnir í Virkum efri árum á Akureyri stóðu sig einstaklega vel í Lífshlaupinu, heilsu- og hvatningarverkefnis Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

Hópurinn hlaut silfurverðlaun fyrir flestar skráðar mínútur í flokknum Hreystihópar 60+. Hópurinn tók við verðlaunaplattanum á frisbíæfingu í Boganum á dögunum.

Vinnustaðir, skólar og hreystihópar 60+ voru hvattir til þátttöku og nýta þannig tækifærið til að efla bæði líkama og sál með daglegri hreyfingu.

Nýjast