Frá vinstri á myndinni eru Bjarni Þórhallsson, formaður Golfklúbbs Akureyrar, Sigrún Steinarsdóttir frá Matargjöfum og Íris Ósk Gísladóttir sölu- og markaðsstjóri Skógarbaðanna
Skógarböðin og Golfklúbbur Akureyrar afhentu í dag Matargjöfum Akureyrar og nágrennis styrk að upphæð 500.000 krónur, sem safnaðist í góðgerðarhöggi við Skógarböðin.
Markmið góðgerðarhöggsins er að styðja við mikilvægt samfélagsverkefni og varð Matargjafir Akureyrar og nágrennis fyrir valinu í ár vegna þess ómetanlega starfs sem samtökin vinna fyrir einstaklinga og fjölskyldur á Norðurlandi.
Viðburðurinn sýndi hversu miklu er hægt að áorka þegar fyrirtæki, félög og einstaklingar leggja krafta sína saman. Samstaðan og viljinn til að leggja góðu málefni lið gerði það að verkum að safnaðist þessi glæsilega upphæð sem nú rennur óskipt til starfsemi Matargjafa.
Samfélagsábyrgð er Skógarböðunum mikilvæg og fyrirtækið leggur áherslu á að styðja við verkefni sem hafa raunveruleg og jákvæð áhrif á nærumhverfið. Með samstarfi við Golfklúbb Akureyrar tókst að skapa vettvang þar sem íþróttir, samvera og samfélagsleg ábyrgð fóru hönd í hönd.
Það er auðvelt að gleyma því að öflugt samfélag byggist af stórum hluta á fólki sem er tilbúið að rétta öðrum hjálparhönd. Starf Matargjafa Akureyrar og nágrennis er einmitt lifandi dæmi um það. Á hverjum degi leggja sjálfboðaliðar og aðrir sem koma að verkefninu sitt af mörkum en það gera þau af alúð, metnaði og umhyggju til að styðja við þá sem þurfa á hjálp að halda.
Skógarböðin vilja færa Golfklúbbi Akureyrar innilegar þakkir fyrir farsælt samstarf við framkvæmd verkefnisins, sem og öllum þátttakendum sem lögðu sitt af mörkum til að gera þessa styrkveitingu mögulega.
Jafnframt vilja Skógarböðin þakka Matargjöfum Akureyrar og nágrennis fyrir það óeigingjarna og mikilvæga starf sem samtökin vinna á hverjum degi. Það er einlæg von okkar að styrkurinn nýtist vel og styðji áfram við það mikilvæga hlutverk sem þau gegna í samfélaginu.
Þegar við stöndum saman getum við raunverulega skipt máli og gert samfélagið okkar hlýrra og sterkara.
Frá þessu segir í tilkynningu á Fb vegg Skógarbaða
Tónlistarhátíðin Kveldúlfur fer fram á Hjalteyri laugardaginn 15. ágúst 2026, þar sem fjölbreyttur hópur íslensks tónlistarfólks kemur fram í einstöku umhverfi við Eyjafjörð.
Maðurinn er félagsvera og löngu þekkt staðreynd að einmannaleiki er alvarlegt böl. Við tilheyrum fjölskyldum okkar, vinnufélögum, vinum og vinkonum. Við erum félagar í íþróttafélögum, klúbbum og jafnvel hópum á Facebook.
Áhöfn togara Samherja, Kaldbaks EA 1 fylgdist með sólmyrkvanum frá Halamiðum, norð-vestur af Ísafjarðardjúpi. Hlé var gert á veiðum til að fylgjast með sólmyrkvanum, þessu afar sjaldgæfa náttúrufyrirbrigði.
„Verkefnastaða í sumar hefur verið góð og mikið að gera. Það hefur verið þéttbókað hjá okkur og talsverð umsvif en það er vaninn yfir sumarið,“ segir Magnús Blöndal sviðsstjóri DNG vinnslubúnaðar hjá Slippnum á Akureyri. Útlitið fyrir komandi haust er einnig gott.
Drift EA hefur formlega sett af stað verkefnið Ignite Nordic á Íslandi, nýtt samstarfsverkefni sem hefur það að markmiði að að efla nýsköpun með því að tengja frumkvöðla, fyrirtæki og opinbera aðila og skapa þannig ný tækifæri til samstarfs, atvinnuuppbyggingar og verðmætasköpunar, ekki síst á landsbyggðinni.