Með samkomulaginu er sett af stað vinna við hönnun á íþróttamiðstöð á félagssvæði Þórs og í kjölfarið gerður samningur um fyrirhugaða uppbyggingu þar sem fram kemur nákvæm áætlun um verkefnið.
Heildar stærð íþróttamiðstöðvarinnar mun liggja fyrir þegar frumhönnun hefur verið lögð fram en er áætluð frá 4.600m² og að hámarki 5.300 m². Þar af er íþróttasalur með um 2.300-2.500 m² gólfflöt.
Sjá nánar um málið i Vikublaðinu n.k. fimmtudag.
akureyri.is sagði fyrst frá