Alls greindust 50 kórónuveirusmit innanlands í gær. Þetta kemur fram á covid.is og eru 23 á sjúkrahúsi, þar af þrír á gjörgæslu. Níu smit eru á Norðurlandi eystra og hefur þeim fjölgað frá því fyrir helgi þegar fimm voru í einangrun. Hins vegar greindist ekkert smit í landshlutanum í gær.
Þá hefur einnig fjölgað töluvert í sóttkví en alls eru nú 66 einstaklingar í sóttkví á Norðurlandi eystra.