Við vinnslu á Vikublaðinu í gær (fimmtudag) voru mistök gerð sem skiluðu auglysingu frá FVSA sem unnin var af Blekhönnun.is ekki með þeim hætti sem til stóð. Hér að ofan er rétt útgáfa af auglýsingunni. Við biðjumst velvirðingar á þessu.
Rannsókn á fjarheilbrigðisþjónustu fyrir fólk með sykursýki 2, sem unnin var á Sjúkrahúsinu á Akureyri, sýnir að tæknin getur bætt aðgengi og aukið öryggistilfinningu sjúklinga. Á fimm mánaða tímabili fækkaði komum á göngudeild úr ellefu í tvær og símtölum til hjúkrunarfræðinga úr fjörtíu og sex í ellefu. Niðurstöðurnar voru kynntar á Vísindadegi SAk í gær og sagt er frá þeim á sak.is .
Níu frumkvöðlateymi í háskólahraðlinum Snjallræði halda til Húsavíkur um helgina þar sem önnur vinnustofa hraðalsins fer fram samhliða HönnunarÞingi. Þetta er annað árið í röð sem Snjallræði tengir vinnustofu sína við þingið og segir Svava Björk Ólafsdóttir, nýsköpunarstjóri Háskólans á Akureyri, reynsluna frá síðasta ári hafa verið það góða að litla umræðu hafi þurft um hvort hópurinn sneri aftur.
Á Akureyri eru starfandi 7 grunnskólar og þar til viðbótar eru skólar í Hrísey og Grímsey að ógleymdum gullmola Akureyrar, Hlíðarskóla. Í þessum skólum er sífellt verið að vinna að verkefnum sem efla nemendur í alls kyns hæfni. Þeir nemendur sem eru góðir í stærðfræði fá víða tækifæri til að aðstoða aðra nemendur og verða þá um leið betri í stærðfræði. Þegar nemendur aðstoða hvern annan þá verða þeir ekki bara betri í viðkomandi fagi heldur efla þeir margt annað sem erfitt er að mæla, svo sem samvinnu, forystuhlutverk, umhyggju, umburðarlyndi og fleira.
„Ég er bjartsýnn að það náist fín lending í þessu máli sem aðilar geti sætt sig við,“ segir Arnar Friðriksson framkvæmdastjóri Norlandair. Félagið átti lægra boðið af tveimur í áætlunarflug frá Akureyri til Vopnafjarðar og Þórshafnar sem boðið var út á liðnu sumri. Einnig var flug milli Akureyrar og Grímseyjar boðið út í sama pakka.
Þrjár nýjar sýningar verða opnaðar í Listasafninu á Akureyri á laugardag, 26. september kl. 15. Þær eru Í skugga átaka sem er samsýning, Logi Bjarnason er með sýninguna Svartur blettur og loks sýning Berglindar Jónu Hlynsdóttur sem ber yfirskriftina 1/3 söngskemmtun, saumur, ló og þvottaleiðbeiningar. Sýningarnar standa til 10. janúar 2027.
Í kjölfar gruns um efnaleka í fiskvinnslunni, Hnýfli, á Óseyri hafa 4 starfsmenn fiskvinnslunnar, leitað aðhlynningar á sjúkrahúsinu á Akureyri. Grunur leikur á að um klórgasleka sé að ræða en slökkvilið vinnur að því að staðfesta það.
Slökkvilið og lögregla eru enn á vettvangi. Lokanir eru enn í gildi og áfram biðlað til fólks að halda sig fjarri Óseyri.
Hundruð manna í heitu vatni, dans, ilmur, bragð og flugeldar yfir höfðum þeirra. Það er meðal þess sem Sigríður Soffía Níelsdóttir hyggst leiða saman í Eldblóma-verki á Hönnunarþingi á Húsavík. Hugmyndin er ekki bara að fólk horfi á sýningu heldur verði sjálft hluti af henni – og fái um stund frí frá hversdeginum.