Margréti EA-710 seld

Margrét EA-710 hefur verið seld til færeyska útgerðarfélagsins Ango   Mynd Samherji.is
Margrét EA-710 hefur verið seld til færeyska útgerðarfélagsins Ango Mynd Samherji.is

Samherji hefur selt uppsjávarskipið Margréti EA-710. Skipið hefur verið afhent kaupanda í Færeyjum þetta kemur fram á samfélagssíðum félagsins. 

Skipið var smíðað í Noregi árið 2008 og er 72 metra langt og 15 metra breitt Samherji keypti Margréti EA árið 2023. Skipið er öflugt og hefur reynst vel við uppsjávarveiðar Samherja undanfarin ár. 

Kaupandi er færeyska útgerðin Ango. Skipið hefur verið afhent og hafa nýir eigendur gefið því nýtt nafn, Ísborg.

Nýjast