Laugardaginn 24. maí, kl. 15 verður boðið upp á almenna leiðsögn um sýningar Þóru Sigurðardóttur, Tími – Rými – Efni, og Heimis Hlöðverssonar, Samlífi, sem opnaðar voru um síðustu helgi. Jafnframt verður fjölskylduleiðsögn um sýningarnar í boði daginn eftir, sunnudaginn 25. maí kl. 11-12.
Aðgangur að almennu leiðsögninni er innifalinn í aðgöngumiða, en aðgangur að fjölskylduleiðsögninni er ókeypis í boði Norðurorku og að henni lokinni er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum sýninganna.
Þóra Sigurðardóttir fæddist og ólst upp á Akureyri. Hún lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1981 og framhaldsnámi við Det Jyske Kunstakademi í Danmörku 1991. Hún hefur sýnt víða á Íslandi og erlendis og m.a. hélt hún einkasýningu í Listasafni Íslands 2024. Verk Þóru eru í eigu opinberra safna og einkasafna hérlendis og erlendis, s.s. Listasafns Íslands, Nýlistasafnsins, Listasafns Reykjavíkur, BBK Print Collection í Berlín og Metropolitan Museum of Art Paper/Print Collection í New York.
Á sýningunni má sjá ný verk sem eiga rætur í áratugalöngum áhuga Þóru á efni, rými og teikningu. Líkaminn, næmi hans, efni, staða og hreyfing eru mikilvæg viðfangsefni Þóru. Í verkunum beinist athyglin að náttúruumhverfi lífverunnar: kalki, kolum, málmum, lífrænum himnum, trefjum og úrgangi.
Heimir Hlöðversson (f. 1976) er margmiðlunarlistamaður og kvikmyndagerðarmaður. Hann er menntaður í kvikmyndagerð, margmiðlun og tónlist, auk þess að vera með mastersgráðu í menningarstjórnun. Heimir hefur unnið við listsköpun og kvikmyndagerð síðastliðin nítján ár, sett upp listasýningar, gert heimildarmyndir og skapað sjón- og hljóðræna upplifun fyrir söfn á Íslandi og erlendis.
Verkið Samlífi er vídeó- og hljóðinnsetning sem dregur fram andstæður og tengsl fólks og náttúru. Hvert er samband fólks og náttúru? Hvernig hefur fólk áhrif á aðlögunarhæfni náttúrunnar og hvernig hefur náttúran áhrif á mannfólkið? Hvernig bregðast lífverur jarðar við stöðugum breytingum í heimi þar sem fólkið ræður mestu um loftslag og umhverfi? Er þörf á að auka skilning á samtengdum heimi okkar og þeim möguleikum sem felast í að móta náttúru og nýsköpun fólksins?