Heillavænleg áhrif kjósenda milli kosninga

Hjörtur Hjartarson skrifar

Sum málefni hafa verið mér hugleiknari en önnur í sambandi við endurskoðun stjórnarskrárinnar. Eitt þeirra atriða snýst um aukin áhrif kjósenda milli kosninga, og það langar mig að útskýra í fáum orðum hér. Þeir sem vilja geta fengið ítarlegri upplýsingar um manninn og málefnin á vefsíðunni http://www.dagskammtur.wordpress.com/.

Tryggja þarf í stjórnarskrá að almenningur geti, að eigin frumkvæði, knúið fram  þjóðaratkvæðagreiðslu um tiltekið mál eða stjórnvaldsákvörðun með söfnun undirskrifta. Skilgreina þarf nákvæmlega hvaða mál yrðu hugsanlega undanþegin og eins hvaða skilyrði yrði að uppfylla til þess að gild krafa um þjóðaratkvæðagreiðslu teldist komin fram. Þá þarf að ákveða hvaða skilyrði atkvæðagreiðslan sjálf þurfi að uppfylla til þess að niðurstaðan teldist gild, það er skilyrði um lágmarksþátttöku og þess háttar.

Slíkar atkvæðagreiðslur að frumkvæði almennings tíðkast víða, og útiloka ekki aðrar leiðir til þess að kalla fram þjóðaratkvæðagreiðslur, svo sem fyrir atbeina forseta Íslands eða tiltekins minnihluta á Alþingi.

Þótt þjóðaratkvæðagreiðslur fái aukið vægi er ekki þar með sagt að allaf sé verið að gera út um mál með þeim hætti. Einn helsti kosturinn við þjóðaratkvæðagreiðslur, sem almenningur getur knúið fram, er fælingarmátturinn. Stjórnvöld eru líklegri til þess hafa almannahagsmuni að leiðarljósi og ganga fram af hófsemi ef þau vita að almenningur getur hvenær sem er skorist í leikinn. - Aukin áhrif kjósenda leiða til farsældar.

Með óskum um heillaríkt stjórnlagaþing.

Höfundur er frambjóðandi til stjórnlagaþings nr. 3 3 0 4.

Nýjast