Fastakúnni á leið inn í Vínbúðina á Húsavík mætti sóknarklerki í durunum, og ályktaði sem svo að nú hefði séra Sighvatur ugglaust verið að ná í messuvínið fyrir næstu altarisgöngu.
En þessi fundur við prest vakti um leið nokkurn ugg í brjósti bjórsvelgs, sem snaraðist inn með hjartað í buxunum og spurði Börk Emilsson Vínbúðarstjóra, hvort klerkur hefði nokkuð verið að dedúa við kraftaverk þar inni. „Var helvítið nokkuð að breyta víni í vatn?“ Spurði svelgur milli vonar og ótta.
Nei, kvað Bötti. “Prestur hinsvegar blessaði allan lagerinn, þannig að nú seljum við eingöngu guðaveigar hér inni.” JS