Framkvæmdir eru hafnar við nýja göngubrú yfir Glerár á móts við Glerártorg. Jafnframt því sem göngubrúin verður reist verða framkvæmdir við nýja jöfnunarstöð fyrir strætó á bökkum Glerár sunnan megin.
Samið var við byggingaverktakann SS-Byggi um framkvæmdirnar en verkið hafði áður verið boðið út tvisvar sinnum. Í hið fyrra barst ekkert tilboð og eitt í síðara útboði og var það langt yfir kostnaðaráætlun eða 55%.
