Víkingur Heiðar spilar í Hofi

Víkingur Heiðar.
Víkingur Heiðar.

Víkingur Heiðar Ólafsson spilar í Menningarhúsinu Hofi, sunnudaginn 25. október kl. 20. Tilefnið er 10 ára afmæli  Hofs og 50 ára afmæli Listahátíðar í Reykjavík. Víkingur Heiðar er meðal eftirsóttustu einleikara sinnar kynslóðar. Hann hlaut nýverið hin virtu þýsku tónlistarverðlaun; Opus Klassik sem píanóleikari ársins, annað árið í röð. Nú var hann verðlaunaður fyrir upptöku sína á verkum frönsku tónskáldanna Debussy og Rameau sem hefur hvarvetna hlotið einróma lof.

Á tónleikunum í Hofi sem og á opnunartónleikum Listahátíðar í Reykjavík mun Víkingur flytja efnisskrá nýju einleiksplötu sinnar sem kom út hjá Deutsche Grammophon fyrr á þessu ári. „Það var ógleymanlegt að taka þátt í opnunartónleikum Hofs fyrir 10 árum. Það er því mikið tilhlökkunarefni að koma og halda einleikstónleika á vegum Hofs og Listahátíðar í þessu glæsilega tónleikahúsi í tilefni af 10 ára afmæli hússins,“ segir Víkingur Heiðar.

Kristín Sóley Björnsdóttir, viðburðastjóri í Hofi, segir óvenjulega tíma í viðburðahaldi kalla á nýja möguleika og skemmtileg tækifæri. „Lítil hugmynd vatt uppá sig  og nú eru tónleikar með Víkingi Heiðari í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík hluti af afmælisveitingum okkar. Það er sérstaklega gaman að fá Víking Heiðar í hús á ný og löngu tímabært og um leið fagna ég samstarfi við Listahátíð í Reykjavík. Þetta er bara byrjunin á góðu sambandi vaxandi afmælisbarna,“ segir Kristín Sóley.  

 


Athugasemdir

Nýjast