„Þetta er þannig starf að þú ert að gefa af þér“

Hér má sjá konurnar sem byrjuðu í náminu haustið 2019 og eru þær því í fyrsta árganginum á heilsunud…
Hér má sjá konurnar sem byrjuðu í náminu haustið 2019 og eru þær því í fyrsta árganginum á heilsunuddarabraut við FSH. Það byrjuðu 17 í verklega náminu þá en nú eru 12 konur eftir sem allar stefna á að útskrifast 2022 eða 2023 eftir stífa tímasöfnun. Helga Björg er hér fremst til hægri. Mynd/aðsend.

Framhaldsskólinn á Húsavík (FSH) býður upp á fjölbreytt nám og leitar sífellt nýrra leiða til að laða til sín nemendur. Það er vissulega áskorun að halda úti öflugum framhaldsskóla í litlu samfélagi en þeim áskorunum mætir FSH með því að hugsa út fyrir boxið og hanna námsbrautir með sérstöðu.

Ein þeirra námsleiða er heilsunuddbraut sem farið var af stað með haustið 2019. Halldór Jón Gíslason, aðstoðarskólastjóri heldur utan um brautina í FSH en Helga Björg Sigurðardóttir, heilsunuddari stýrir kennslunni. Þau eru í góðu samstarfi við Fjölbrautaskólann í Ármúla sem hefur kennt brautina um árabil. „Við höfum alltaf getað leitað þangað í þá þekkingu og reynslu sem þar býr,“ segir Halldór Jón en FSH og FÁ eru einu skólarnir á landinu sem bjóða upp á þetta nám. Vikublaðið ræddi við Helgu Björg.

 14 ár í nuddinu

Helga Björg segir að það hafi blundað í sér um nokkurt skeið að læra nudd þegar hún loksins lét verða af því. „Það sem ýtti mér kannski á stað í þetta er bara ákveðin  sjálfsskoðun. Ég var að vinna mikið í sjálfri mér á þessum tíma en þarna var ég orðin læknaritari. Nuddnámið  var kennt í Ármúla þar sem læknaritarinn var kenndur og ég var búin að sjá fög sem voru svolítið lík. Ég útskrifaðist sem læknaritari 2005 og strax í kjölfarið skrái ég mig í heilsunudd. Tek þetta bara í beinu framhaldi. Þá var farið að bjóða upp á þetta nám á Akureyri en ég er í fyrsta árganginum sem lærir þetta á þar. Ég útskrifast vorið 2009 en það er nokkuð síðan þetta nám hætti á Akureyri.

Helga Björg hefur starfað við nudd í og með síðan. „Ég var náttúrlega að vinna sem læknaritari á Heilsugæslunni á Húsavík og nuddaði með. Svo hætti ég á spítalanum og fór að vinna á Deplum þar sem ég var eingöngu að nudda,“ segir Helga Björg en Deplar er lúxushótel í Fljótum.  

„Ég var byrjuð að nudda um áramót 2007 þannig að þetta eru að verða 14 ár. Það er nú bara nokkuð góður lífaldur nuddara,“ segir hún og bætir við að fólk sé oft ekki lengi starfandi í greininni. „Nuddarar eru oft fljótir að brenna upp.“

Nuddarabraut

Hópurinn sem var að klára fyrsta áfangann í verklega náminu, klassískt nudd. Mynd/ aðsend.

 

Sjálf segir Helga Björg að hún hafi yfirleitt unnið við nuddið í hlutastarfi með öðru og þess vegna endist hún lengi í faginu.

Aðspurð hvers vegna starfsaldur nuddara sé oft skammur segir hún að fólk slitni oft í höndum eins og í fleiri iðngreinum. „Mér skilst samt að það sé meira genatískt heldur en nuddið. En margir fá einhverja svona álagskvilla og veldur því að fólk hættir að nudda.

Skráðu þig inn til að lesa

Fáðu þér áskrift til þess að halda áfram að lesa.

Verð frá 2.690 kr. á mánuði.

 


Athugasemdir

Nýjast