Kammerkór Norðurlands býður upp á „Sound of Silence“

Kór og stjórnandi þann  22 okt á æfingu í Þorgeirskirkju. Mynd/Aðsend.
Kór og stjórnandi þann 22 okt á æfingu í Þorgeirskirkju. Mynd/Aðsend.

Ásgeir Böðvarsson úr Kammerkór Norðurlands segir það nokkuð ljóst að menningarstarfsemin sé að ná sér á strik eftir kulsöm Covid-ár. „Heyra má fréttir af leiksýningum og tónleikum víða um landið og er það vel. Kammerkór Norðurlands  ætlar ekki að verða eftirbátur annarra í þeim málum og höldum tónleika undir nafninu „Sound of Silence“dagana 5. – 6. nóvember á Norðurlandi um helgina,“ segir Ásgeir.  

Tónliekarnir verða á eftirtöldum stöðum:

Þorgeirskirkja - 5. nóv. kl. 14:00

Berg, Dalvík - 5. nóv. kl. 20:00

Akureyrarkirkja - 6. nóv. kl. 16:00

Ásgeir segir efnisskrá kórsins að þessu sinni vera bandarísk kórtónlist og kennir þar ýmissa grasa. „Flutt verða nokkur af glæsilegustu nýrri kórverkum höfuðtónskálda Bandaríkjanna. Einnig eru á efnisskránni þjóðlög, trúarleg lög og þekkt popplög í nýjum og afar metnaðarfullum útsetningum,“ segir Ásgeir og bætir við að  meðal lagahöfunda megi nefna Paul Simon, Eric Whitacre, Jake Runestad, Billy Joel, Ola Gjeilo, Réne Clausen og Morten Lauridsen.

Stjórnandi Kammerkórs Norðurlands er sem fyrr Guðmundur Óli Gunnarsson en kórfélagar eru flestir tónlistarmenntaðir og/eða atvinnufólk í tónlist og koma víða að af Norðurlandi.  Kórinn hefur frá stofnun haft að markmiði að flytja nýja íslenska kórtónlist (raunar með ýmsum öðrum verkefnum) og gefið út þrjá hljómdiska, síðast árið 2020, en þar er að finna ljóð Davíðs Stefánssonar við ný og eldri íslensk lög.

En að þessu sinni er stefnan tekin til Bandaríkja Norður-Ameríku.


Athugasemdir

Nýjast