Alþjóðlegt skákmót á Akureyri

Í tilefni af aldarafmæli Skákfélags Akureyrar stendur félagið fyrir öflugasta skákmóti sem nokkru sinni hefur verið haldið á Akureyri. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, setur mótið kl. 15 á morgun, laugardaginn 25. maí og teflt verður á hverjum degi í eina viku. Mótið er haldið í Menningarhúsinu Hofi og eru um sextíu keppendur skráðir til leiks, bæði innlendir og erlendir.

Þekktustu erlendu gestirnir eru stórmeistaranir Ivan Sokolov frá Hollandi og svíinn Tiger Hillarp-Persson. Auk þess að vera öflugir stórmeistarar eru þeir báðir þekktir fræðimenn og skákrithöfundar.

Á mótinu verður teflt um þrjá Íslandsmeistaratitla og munu flestir af okkar sterkustu stórmeisturum tefla um titilinn „Skákmeistari Íslands". Má nefna meistara fyrra árs; Helga Áss Grétarsson, tólffaldan Íslandsmeistara, Hannes Hlífar Stefánsson og þá Héðin Steingrímsson og Braga Þorfinnsson. Einnig mætir til leiks margfaldur Íslandsmeistari kvenna, Lenka Ptácniková, sem mun freista þess að verja meistaratitil sinn í kvennaflokki.

Fyrir utan að vera afmælismót Skákfélags Akureyrar, er það einnig helgað minningu Guðmundar Arasonar skákfrömuðar en öld er nú liðin frá fæðingu hans. Frá þessu er greint á vef Akureyrarbæjar.


Athugasemdir

Nýjast